Innlent

Opið í Bláfjöllum í dag

Frá Bláfjöllum
Frá Bláfjöllum
Í dag er opið í Bláfjöllum til klukkan fimm. Fyrir stundu var sex stiga frost á skíðasvæðinu, vindur var ekki mikill og á að draga úr honum þegar líður á daginn. Færið í brautum er sagt einstaklega gott og hvergi harðfenni.

Skíðasvæðið í Tindastól á Sauðárkróki verður opið frá klukkan 11 til 4 í dag. Þar er sex stiga frost og sunnan 4 m/sek. Það er mikill snjór á svæðinu og frábært færi. Tekið er fram í tilkynningu að búið sé að kveikja á jólaljósunum og gera fínt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×