Innlent

Grunur um salmonellu í kjúklingum

Myndin tengist fréttinni ekki beint
Myndin tengist fréttinni ekki beint
Komið hefur upp grunur um salmonella smit í ferskum kjúklingi framleiddum af Matfugli ehf. Frekari rannsókna er þörf til þess að staðfesta gruninn en þangað til þykir fyrirtækinu rétt að innkalla vöruna, segir í tilkynningu. Um er að ræða kjúkling með rekjanleikanúmerum 011-10-42-2-01 og 215-10-42-1-04. Dreifing á vörunni hefur verið stöðvuð.

„Í samræmi við innra eftirlit fyrirtækisins og í samráði við heilbrigðisyfirvöld hefur verið unnið að innköllun vörunar. Hafi fólk ferska kjúklinga heima hjá sér er það beðið um að gæta að rekjanleikanúmerinu, sem er að finna á umbúðunum, og skila kjúklingnum í viðkomandi verslun eða beint til Matfugls ehf., Völuteigi 2, Mosfellsbæ.

Til að varast óróleika hjá neytendum skal það tekið fram að þessi kjúklingur er hættulaus fari neytendur eftir leiðbeiningum um eldun kjúklinga, steiki í gegn og passi að blóðvökvi fari ekki í aðra vöru. Kjúklingur með öðru rekjanleikanúmeri en þessu er fullkomlega í lagi," segir í tilkynningunni frá Matfugli ehf.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×