Innlent

Fólksbíll og rúta skullu saman

Akureyri
Akureyri
Umferðarslys varð á Akureyri klukkan hálf átta í gærkvöld. Fólksbíll lenti þar framan á rútu sem kom úr gagnstæðri átt.

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Akureyri lenti fólksbíllinn vinstra megin framan á rútunni en ökumaður fólksbílsins var fluttur á slysadeild. Einungis ökumaður var í rútunni og slapp hann án meiðsla.

Fólksbíllinn er mikið skemmdur og þá er rútan óökufær. Tildrög slyssins liggja ekki fyrir en mikið hálka var á svæðinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×