Innlent

Stjórnin minnt á sóknaráætlun

Grindvíkingar bætast í stóran mótmælakór.fréttablaðið/vilhelm
Grindvíkingar bætast í stóran mótmælakór.fréttablaðið/vilhelm

Bæjarráð Grindavíkurbæjar mótmælir hugmyndum um vegatolla á Reykjanesbraut og segir auknar álögur í formi vegatolla munu hafa verulega neikvæð áhrif á búsetu, atvinnustig, fasteignaverð og fyrirtæki á Suðurnesjum.

Á heimasíðu sveitarfélagsins vekur bæjarráð athygli ríkisstjórnarinnar á því að hún hafi sjálf skilgreint Suðurnes sem hluta af atvinnusvæði höfuðborgarsvæðisins í tillögu að Sóknar­áætlun 20/20.

Bæjarráð Grindavíkurbæjar hvetur því samgöngunefnd Alþingis og samgönguráðherra til að endurskoða hugmyndir um vegatolla á Reykjanesbraut. - shá




Fleiri fréttir

Sjá meira


×