Fótbolti

Pato tæpur fyrir seinni leikinn gegn Man. Utd

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Sigur AC Milan á Atalanta í gær gæti reynst Milan dýrkeyptur því Brasilíumaðurinn Alexandre Pato meiddist í leiknum eftir að hafa skorað tvö mörk í leiknum.

Leonardo, þjálfari AC Milan, segir að það komi í ljós á næstu dögum hversu alvarleg meiðslin séu. Hann óttast þó að meiðslin séu alvarleg.

Milan mætir Man. Utd í síðari leik liðanna í Meistaradeildinni þann 10. mars og hefur verk að vinna eftir að hafa tapað heimaleiknum, 2-3.

Pato er búinn að skora 14 mörk í 25 leikjum í vetur.



 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×