Erlent

Flugmóðurskip á leið til Kóreuskaga

Óli Tynes skrifar
USS George Washington
USS George Washington

Bandaríska flugmóðurskipið George Washington er á leið að Kóreuskaga ásamt fjölmörgum beitiskipum, tundurspillum og freigátum. Flotadeildin mun taka þátt í heræfingum með flota Suður-Kóreu.

Þótt æfingarnar hafi verið löngu ákveðnar má gera því skóna að Norður-Kóreumenn taki þær óstinnt upp. Það voru æfingar suður-kóreska flotans sem voru kveikjan að árásinni í gær og með komu bandarísku flotadeildarinnar þykir norðanmönnum líklega orðið þröngt fyrir dyrum. Herir beggja landanna eru enn í ítrustu viðbragðsstöðu og lítið þarf til þess að uppúr sjóði.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×