Innlent

Minnsta utankjörfundaraðsókn síðastliðinn áratug á Suðurnesjum

Valur Grettisson skrifar
Mynd úr safni.
Mynd úr safni.

Atkvæðagreiðslu utan kjörfundar vegna stjórnlagaþingskosninga er lokið hjá sýslumanninum í Keflavík.

209 greiddu atkvæði sem er lang minnsta kjörsókn utan kjörfundar í öllum kosningum síðastliðinn áratug.

Í Icesave kosningunum kusu 485, og þá eins og nú eru móttekin aðsend atkvæði meðtalin.

Í síðustu þrennum alþingiskosningum og síðustu þrennum sveitarstjórnarkosningum kusu að meðaltali 834, en aðsend atkvæði eru ekki meðtalin í þeim tölum samkvæmt upplýsingum frá sýslumanni Keflavíkur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×