Innlent

Breið samstaða náðist

Haldinn verður þjóðfundur með svipuðu sniði og í nóvember áður en boðað verður til stjórnlagaþings, verði frumvarp um stjórnlagaþing samþykkt. Tillaga um nýja stjórnarskrá verður lögð fyrir haustþing 2011.fréttablaðið/pjetur
Haldinn verður þjóðfundur með svipuðu sniði og í nóvember áður en boðað verður til stjórnlagaþings, verði frumvarp um stjórnlagaþing samþykkt. Tillaga um nýja stjórnarskrá verður lögð fyrir haustþing 2011.fréttablaðið/pjetur

Samstaða hefur náðst á Alþingi um afgreiðslu frumvarps um stjórnlagaþing. Forsenda hennar voru breytingartillögur allsherjarnefndar og búist er við að frumvarpið verði samþykkt á næstu dögum.

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra lagði frumvarpið fram 4. nóvember. Í því er gert ráð fyrir að stjórnlagaþing geri tillögur um breytingar á stjórnarskrá, sem síðan fari fyrir Alþingi; enda geti það eitt breytt lögum.

Sjálfstæðismenn hafa helst sett sig á móti hugmyndinni um stjórnlagaþing og hafa viljað fara hefðbundnari leiðir stjórnarskrárnefndar. Málið hefur verið nokkuð rætt, bæði í þingsal og eins í nefnd, og nú hefur samkomulag náðst.

Tvær breytingartillögur voru gerðar við frumvarpið. Í þeirri fyrri er skerpt á ákvæðum um kosningarétt og kjörskrár, hvernig atkvæði skuli talin og hvernig farið skuli með kærur.

Í hinni breytingartillögunni er kveðið á um stofnun sjö manna nefndar sem undirbúi og haldi utan um þjóðfund, þar sem fjallað verður um stjórnarskrána. Þá ber henni að taka saman upplýsingar sem nýst gætu stjórnlagaþinginu og undirbúa tillögur þjóðfundarins til stjórnlagaþingsins.

Fulltrúar allra flokka í allsherjarnefnd standa að þessari tillögu, nema fulltrúi Framsóknarflokksins, Vigdís Hauksdóttir. Ekki náðist í hana við vinnslu fréttarinnar.

Árni Þór Sigurðsson, varaformaður allsherjarnefndar, segir að með síðartöldu breytingartillögunni hafi tekist að ná breiðari pólitískri samstöðu um málið. Það sé mjög eftirsóknarvert, því stjórnarskráin sé svo mikilvæg að best sé að um hana ríki sátt.

„Þær breytingar sem efnislega er verið að leggja til snúa að því að áður en til stjórnlagaþings kemur verði efnt til þjóðfundar, með slembiúrtaki úr þjóðskrá. Það sé svo skipuð nefnd sem haldi utan um þjóðfundinn og vinni úr honum upp í hendurnar á stjórnlagaþinginu. Hún skoði einnig breytingar og hugmyndir fyrri ára og leggi einhverjar tillögur fyrir stjórnlagaþingið.“

Árni Þór segir stjórnlagaþinginu í sjálfsvald sett hvað það geri við þær tillögur eða hvort það taki tillit til þeirra. Með þessu sé hins vegar ákveðinni undirbúningsvinnu lokið þegar kemur að stjórnlagaþinginu sjálfu. Þá verði tryggt að fleiri komi að málinu, en á þjóðfundi gætu setið um 1.000 fulltrúar.kolbeinn@frettabladid.is




Fleiri fréttir

Sjá meira


×