Innlent

Vilja breyta geymslu í miðstöð fyrir íbúa

Kefli og spennar eru meðal þess sem Orkuveitan getur gripið til í geymslu sinni við Austurbæjarskóla verði bilun þar í nágrenninu.Fréttablaðið/Valli
Kefli og spennar eru meðal þess sem Orkuveitan getur gripið til í geymslu sinni við Austurbæjarskóla verði bilun þar í nágrenninu.Fréttablaðið/Valli
Borgaryfirvöld skoða nú þann möguleika að innrétta félagsmiðstöð í geymslu Orkuveitunnar við Austurbæjarskóla.

Foreldrar barna í Austurbæjarskóla hafa lengi haft horn í síðu notkunar Orkuveitunnar á geymslunni sem er í gamalli dreifistöð við suðurenda skólans. Telja foreldrarnir slysahættu af umferð flutningabíla. Hugmynd um að breyta geymslunni í félagsmiðstöð fyrir unglinga hefur lengi verið á kreiki. Kjartan Magnússon, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokks, lagði í október fram tillögu í Íþrótta- og tómstundaráði að þessi möguleiki yrði kannaður og var það samþykkt. Í fyrravetur kannaði framkvæmdasvið borgarinnar hvort þetta væri yfirleitt hægt og reyndist svo vera. Því muni þó fylgja talsverður kostnaður því geymslan uppfylli engar kröfur sem íverustaður.

„Það liggur fyrir að það þyrfti að gera umtalsverða breytingar á þessu húsnæði svo það verði nothæft sem félagsmiðstöð," segir Kjartan og útskýrir að hugmyndin sé sú að miðstöðin verði fjölnota og meðal annars nýtast fyrir almennt félagsstarf í hverfinu. „Það eru ýmsar útfærslur á borðinu. Meðal annars hafa foreldrarnir lýst því yfir að þeir séu reiðubúnir að leggja mikla sjálfboðavinnu af mörkum til að gera þetta að veruleika, Þá sé rætt um aðkomu Tækniskólans að verkinu."

Eiríkur Hjálmarsson, upplýsingafulltrúi Orkuveitunnar, segir fyrirtækið þegar hafa svipast um eftir hentugu húsnæði til að leysa geymsluna í Austurbæjarskóla af hólmi. Hann útskýrir að mikilvægt sé fyrir fyrirtækið að hafa lagerhúsnæði á þessum slóðum.

„Þessi geymsla gerir það að verkum að viðbragðstími vegna bilana í Vesturbænum er styttri en ella," segir Eiríkur sem kveður Orkuveituna nú fyrst og fremst bíða næstu skrefa hjá borginni.

„Því mun fylgja kostnaður og við getum ekki lagt út í hann fyrr en kaupandi er fundinn að núverandi geymslu."

gar@frettabladid.is




Fleiri fréttir

Sjá meira


×