Enski boltinn

Sunnudagsmessan: Framherjar Everton eru í basli

Everton hefur átt í miklum vandræðum í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu það sem af er keppnistímabilinu. Liðið er í 15. sæti með 18 stig þegar 17 umferðum er lokið og vekur það athygli að framherjar liðsins hafa aðeins skorað 2 af alls 18 mörkum liðsins.

Í þættinum Sunnudagsmessunni s.l. sunnudag benti Hjörvar Hafliðason m.a. á þá staðreynd að Louis Saha framherji Everton á enn eftir að opna markareikninginn á þessu tímabili. Jermaine Beckford hefur aðeins skorað 2 mörk og Yakubu Aiyegbeni hefur skorað 1 mark.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×