Innlent

HÍ: Hærri skrásetningargjöld og aðgangstakmarkanir

Fjárveitingar til háskólans verða á næsta ári skornar niður um 475 milljónir króna frá árinu 2010. Áætlað er að yfir 900 nemendur verði í skólanum án þess að þeim fylgi fjárveiting.
Fjárveitingar til háskólans verða á næsta ári skornar niður um 475 milljónir króna frá árinu 2010. Áætlað er að yfir 900 nemendur verði í skólanum án þess að þeim fylgi fjárveiting.
Háskóli Íslands hefur óskað eftir því að fá heimild til að hækka 45 þúsund króna skrásetningargjald við skólann sem hefur verið óbreytt frá árinu 2005. Miðað við verðlagsforsendur fjárlaga frá 2005 væri gjaldið nú 70.000 krónur, að því er kemur fram í tilkynningu frá HÍ.

Lagabreytingu þarf til að heimila hækkun og hefur beiðni Háskóla Íslands um hækkun verið synjað af hálfu stjórnvalda. Háskóli Íslands leggur mikla áherslu á að þessi ákvörðun verði tekin til endurskoðunar, en um leið að skrásetningargjaldið verði lánshæft hjá Lánasjóði íslenskra námsmanna.

Fleiri sækja um en ríkið greiðir fyrir

Til að bregðast við niðurskurði á árinu 2011 leggur háskólaráð megináherslu á að verja kjarnastarfsemi skólans, það er kennslu og rannsóknir, og standa vörð um gæði háskólastarfsins. Á fundi sínum 17. desember ákvað háskólaráð að undirbúa hugsanlegar aðgangstakmarkanir í Háskóla Íslands vegna þess að mun fleiri sækja nú um nám en ríkisvaldið greiðir fyrir til skólans.

Árið 2011 tekst Háskóli Íslands á við niðurskurð fjárveitinga þriðja árið í röð, þótt nemendum hafi á sama tíma fjölgað verulega. Fjárveitingar til háskólans verða á árinu skornar niður um 475 milljónir króna frá árinu 2010. Áætlað er að yfir 900 nemendur verði í skólanum án þess að þeim fylgi fjárveiting.

Fjölgun nemenda veldur skólanum verulegum viðbótarkostnaði vegna kennslu, húsnæðis og margvíslegrar þjónustu.

Álag hefur aukist gífurlega á starfsfólk og alla aðra þætti skólastarfsins. Við þessu verður að bregðast. Skólinn telur nauðsynlegt að gripið verði til ráða til að tryggja hagsmuni nemenda og gæði námsins.

Fækkun starfsfólks

Frekari aðhaldsaðgerðir munu meðal annars fela í sér fækkun starfsfólks og lækkun starfshlutfalls. Kennsluálag eykst hjá kennurum sem ekki hafa með höndum umfangsmikil stjórnunarstörf og gripið verður til enn aukins aðhalds í öllum rekstri og hagræðingar í kennslu til að mæta niðurskurðinum á komandi ári. Mikil áhersla verður lögð á að verja áfram rannsóknir við skólann.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×