Hugsanlega með lífsýni úr skotmanninum 25. október 2010 08:30
Lögreglan í Malmö í Svíþjóð er vongóð um að hafa náð DNA sýni úr manninum sem skotið hefur á innflytjendur í borginni undanfarið ár. Fimmtán manns hafa verið skotnir í Malmö á einu ári og grunar lögregluna að einn og sami maðurinn sé þar að verki. Nú gæti lögreglan verið komin á sporið en á laugardag var skotið á verkstæði hjá klæðskera einum í borginni. Klæðskerann sakaði ekki í árásinni og hljóp hann út og sá þar ókunnugan mann. Hann náði í manninn en eftir snörp átök komst hinn grunaði í burtu á reiðhjóli. Áður en hann flúði af hólmi hafði hann hinsvegar skallað klæðskerann í andlitið og nú vonar lögreglan að hann hafi skilið eftir hár eða húðflygsur sem duga til að finna lífsýni úr byssumanninum. Reynist það rétt er möguleiki á því að maðurinn sé á sakaskrá og þarmeð verði hægt að skera úr um hver sé þarna að verki. Óljóst er hvenær niðurstöður rannsóknarinnar berast. Málið hefur að vonum vakið óhug meðal íbúa í Malmö. Ein kona hefur látið lífið, en margir særst alvarlega. Talið er öruggt að maðurinn stjórnist af útlendingahatri, en í Malmö, er stór hluti íbúanna af erlendu bergi brotinn.
Mest lesið Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Nauðgaði sofandi konu í jólateiti Innlent Þrjú börn á gjörgæslu og eitt í öndunarvél Innlent „Við skulum ekki endurtaka gömlu mistökin“ Innlent Alþjóðastarf þingmanna álitið sem „fyllerís- og fríferðir“ Innlent Sigurði Inga heitt í hamsi þegar hann flutti eldræðu um útlendinga Innlent Ekkert sem gefi til kynna að Framsókn standi fyrir mannúð Innlent Sigurður hafi fært Framsókn fjær Bjarna og Sigmundi Innlent „Margt að óttast“ en ameríski draumurinn lifir Erlent Skorinn með hníf á skemmtistað í miðbænum Innlent Fleiri fréttir Ostaþjófnaður skekur heim matgæðinga: „Hver vill svona mikinn ost?“ „Margt að óttast“ en ameríski draumurinn lifir Badenoch nýr leiðtogi Íhaldsflokksins „Ég myndi frekar kasta mér fram af kletti en að kjósa Donald Trump“ Létust þegar skyggni hrundi ofan á þau í Serbíu Rúmlega tvö hundruð látnir eftir flóðin Kim hafi stutt Rússa frá upphafi „heilags stríðs“ þeirra Telja opinber úrslit kosninganna í Georgíu ekki standast Háttsettur Trump-liði segir RFK hafa sannfært hann um skaðsemi bóluefna Rússar taldir hylja slóð flutningaskipa til að verja olíuhafnir sínar Búa sig undir meiri rigningu og fleiri flóð á Spáni Segir ummæli Trump um konur móðgun við alla Um átta þúsund norðurkóreskir hermenn á landamærunum Horfði á lík fljóta fram hjá Tala látinna á Spáni hækkar Rússar og Íranar auka samstarf í varnarmálum Stórsigur beggja innan skekkjumarka Ný flaug flaug lengra en áður Leita manns sem skildi eftir sprengiefni á lestarstöð í Berlín Sækja hraðar fram í Dónetsk Trump lék ruslakarl í Wisconsin Halda áfram leit eftir eyðileggingu flóðanna Nágranna Erlu enn saknað: „30 bílar bara í hrúgu hérna fyrir utan hjá mér“ Segjast rannsaka ásakanir um kosningasvik í Georgíu Beðin um að tilkynna líkfundi Óttast að hermenn Kim öðlist reynslu af hernaði Sagði Trump heltekinn hefndarvilja Tala látinna á Spáni hækkar hratt Biden í bobba eftir ummæli um rusl Loftvarnir Íran verulega laskaðar eftir árásir helgarinnar Sjá meira