Innlent

Jarðskjálfti í Vatnajökli

MYND/Vilhelm

Jarðskjálfti sem mældist um 3.9 á Richter kvarðanum reið yfir í Vatnajökli kortér fyrir tíu í morgun. Skjálftinn varð á eins kílómetra dýpi um ellefu kílómetra austur af Hamrinum og norðvestan við Grímsvötn.

Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofunni var um einn stóran skjálfta að ræða og hafa fleiri minni ekki fylgt í kjölfarið enn sem komið er. Gosórói mælist heldur enginn á þessum slóðum eins og er.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×