Innlent

Stjórnlaus á ógnarhraða

Það stefndi í hópslys á Norðurlandsvegi í Víðidal í Húnavatnssýslu í gærkvöld þegar stjórnlaus bíll nálgaðist slysstað á ógnarhraða.

Atburðarrásin hófst með því að bíll á leið til Reykjavíkur, með fimm manns um borð, rann í flughálku út af veginum. Tveir menn í næsta bíl komu til aðstoðar og náðu að draga bílinn upp á veginn aftur.

Vitni að atvikinu sem fréttastofa ræddi við í morgun segir að fólk úr báðum bílum hafa farið út og var verið að gera upp togið, þegar bíll nálgaðist á lítilli ferð. Skyndilega sást hvar annar bíll þeyttist fram úr honum og stefndi beint á allan hópinn.

Tók þá fólk til fótanna og hljóp í allar áttir og skall bíllinn aftan á bílnum, sem hafði verið dreginn upp, en hann kastaðist á ökumanninn, sem féll í götuna og slasaðist.

Þaðan þeyttist aðkomubíllinn út fyrir veg og lenti þar á konu, sem var á flótta, ók hana niður og staðnæmdist, en þá var konan hálf undir bílnum.

Læknir, sem var staddur á vettangi, kallaði þegar eftir björgunarliði frá Blödnuósi og Hvammstanga, og eftir þyrlu Landhelgisgæslunnar.

Hún flutti hin slösuðu á Landspítalnn í Reykjavík, en þau reyndust ekki eins alvarlega slösuðu og óttast var í fyrstu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×