Mikill fjöldi fólks hefur látist vegna kóleru á Haítí undanfarna daga. Yfir 1500 manns hafa sýkst.
Heilbrigðisstarfsmenn og forseti landsins hafa staðfest kólerufaraldur norðan við höfuðborgina Port-au-Prince. Forsetinn René Préval segir að ríkisstjórn hans vinni að því að útbreiðsla sjúkdómsins verði heft.
Óttast hefur verið að faraldur af þessu tagi brytist út allt frá því jarðskjálfti reið þar yfir í janúar. Þetta er í fyrsta sinn í heila öld sem kólerufaraldur brýst út í landi í eða við karabíska hafið. - þeb