Innlent

Erill hjá lögreglu í borginni og á Selfossi

Mikill erill var hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu vegna skemmtanahalds í nótt en hvergi dró þó til alvarlegra tíðinda og engin líkamsárás var kærð.

Mörg útköll bárust vegna hávaða í heimahúsum og sumstaðar þurfti að stilla til friðar en ekki þurfti að taka fólk úr umferð. Fólk var á ferli í miðborignni alveg farm á morgun.

Svipaða sögu er að segja frá Selfossi, þangað sem margir utanbæjarmenn lögðu leið sína. Þar var einn fangelsaður eftir að hafa stangað tönn úr öðrum og eithvað var um pústra. Það var hinsvegar rólegt á Akureyri í nótt.












Fleiri fréttir

Sjá meira


×