Innlent

Tíu þúsund trassar: Ríkisskattstjóri undirbýr aðgerðir

Skúli Eggert Þórðarson ríkisskattstjóri
Skúli Eggert Þórðarson ríkisskattstjóri
Fleiri en tíu þúsund fyrirtæki eiga eftir að skila ársreikningi til ársreikningaskrár, en ríkisskattstjóri segir sum fyrirtæki hafa trassað skilin svo árum skipti. Hann skorar á fyrirtæki að gera bragarbót á og boðar aðgerðir á næstu mánuðum.

Embætti ríkisskattstjóri birtir auglýsingu í fjölmiðlum í dag þar sem skorað er á stjórnir félaga að skila ársreikningi fyrir árið 2009 til ársreikningaskrár. Skúli Eggert Þórðarson, ríkisskattstjóri, segir um sameiginlegt átak hjá embættinu og Viðskiptaráði að ræða.

Samkvæmt lögum áttu félög að skila ársreikningum til ársreikningaskrár fyrir lok ágústmánaðar síðastliðins, en Skúli segir mikinn fjölda fyrirtækja hafa virt skilafrestinn að vettugi.

„Það eru eitthvað yfir tíu þúsund ársreikningar sem ekki hafa borist til ársreikningaskrár til opinberrar birtingar. Við erum að hefja auglýsinga- og kynningarherferð til að koma þessum skilum í lag. Í framhaldi af því hefjast svo beinar aðgerðir," segir Skúli.

Skúli segir ýmsar ástæður fyrir því að stjórnir fyrirtækja láti hjá líða að skila ársreikningi til opinberrar birtingar. Sumir beri fyrir sig samkeppnisástæður, aðrir óttist að fjölmiðlar birti upplýsingar úr ársreikningunum, en meginástæðan sé þó trassaskapur eða hugsunarleysi. Hann segir algengt að fyrirtæki trassi skilin í lengri tíma, og jafnvel mörg ár.

„Því miður þá eru það of mörg tilfelli. Það eru of margir sem senda ekki reikningana, jafnvel nokkur ár í röð. Þetta þýðir auðvitað að við verðum að grípa til aðgerða."

Skúli segist ekki geta tilgreint nákvæmlega hversu langur tími líður þar til embættið grípur til þess ráðs að sekta fólk. Hann fullyrðir þó að eftir einn til tvo mánuði verði gripið til aðgerða ef menn verði ekki komnir með skilin í lag. Embættið hafi nokkuð oft lagt sektir á fyrirtæki, en Skúli segir embættið oft nýta sektarrammann að fullu, sem heimilar allt að 500 þúsund króna sekt á félög sem vanrækja skilaskylduna.

„Sumir láta sér samt sem áður ekki segjast, þó sektir séu lagðar á. Þá þurfa menn auðvitað að huga að öðrum aðgerðum, og það er einnig í undirbúningi."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×