Erlent

Forseti S-Kóreu herskár

Forseti Suður Kóreu hét því í ræðu sem hann hélt í morgun að sunnanmenn myndu bregðast við af fullri hörku ef norðanmenn myndu gera aðra árás í svipuðum dúr og þegar fjórir suðurkóreumenn létust í síðasta mánuði.

Forsetinn hefur verið gagnrýndur fyrir lítil viðbrögð við þeirri árás en í ræðunni í morgunn sagðist hann alls óhræddur við að hefja stríð gegn kommúnistunum í Norðrinu, verði honum ögrað frekar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×