Segir tómarúm á stóru svæði innan Sjálfstæðisflokksins Þorbjörn Þórðarson skrifar 26. desember 2010 13:54 Þorsteinn Pálsson, fyrrverandi formaður Sjálfstæðisflokksins. Hann segir að dvöllin í Lundúnum hafi kennt sér margt og veitt sér dýrmæta reynslu.
Þorsteinn Pálsson segir að ákveðið tómarúm sé á stóru svæði í Sjálfstæðisflokknum meðal þeirra sem fylgja ESB-málinu. Hann segist sannfærður um að Sjálfstæðisflokkurinn muni virkja þetta afl. Hann útilokar endurkomu í stjórnmál. „Það er afar óhollt að endurskoða söguna fyrir sjálfan sig," segir Þorsteinn Pálsson, fyrrverandi forsætisráðherra, sendiherra og ritstjóri. Jón Baldvin Hannibalsson og Steingrímur Hermannsson og Þorsteinn sjálfur gerðu allir kröfu um að verða forsætisráðherrar fyrir stjórnarmyndunina 1987, segir Þorsteinn en hann gerði upp árin sín í stjórnmálum í Sprengisandi, þætti Sigurjóns M. Egilssonar á Bylgjunni í morgun. Þorsteinn sagði að ágreiningur um málefni hafi á endanum endað ríkisstjórnarsamstarfið, en því lauk í beinni útsendingu á Stöð 2. Og er útsendingin því um margt söguleg. Þorsteinn sagði við Sigurjón í morgun að efnislega hafi samstarfið verið búið töluvert fyrir þetta sjónvarpsviðtalið þar sem leiðtogarnir þrír fóru yfir málin. Átti ærleg samtöl við Albert Guðmundsson Þorsteinn fór lengra aftur í þættinum og sagði að hann hefði átt ærleg samtöl við Albert Guðmundsson, sem hann bað um að segja af sér í aðdraganda alþingiskosninganna 1987, en sumir stjórnmálaskýrendur hafa talið þennan atburð vörðu á vegferð Þorsteins út úr stjórnmálum. Hægt er að hlusta á viðtalið við Þorstein á vef Vísis og Bylgjunnar. „Af því að maður var ungur þá var maður meira tilbúinn að leggja áherslu á málefnin en stólana," sagði Þorsteinn, sem segir það hafa verið hollt að vera málefnalegur. Þorsteinn fór yfir Viðeyjarstjórnina 1991 þegar honum var boðið að velja sér ráðherrastól eftir að hafa tapað í formannskjöri á landsfundi fyrir Davíð Oddssyni. Þorsteinn fór einnig yfir störf sín sem sendiherra og sagði að hann hefði lært mikið á því að vera sendiherra í Lundúnum, sérstaklega því að vera nálægt breskum stjórnmálum. Þorsteinn sagði við Sigurjón að ákveðið tómaróm væri á hægri vængnum í íslenskum stjórnmálum og vísaði þar til áhuga margra sjálfstæðismanna sem vilja klára samningsferlið við ESB og leggja niðurstöðuna í dóm þjóðarinnar en ályktun landsfundar flokksins var á þá lund að draga ætti aðildarumsóknina til baka. Þorsteinn sagðist samt ekki efast um að Sjálfstæðisflokkurinn myndi stíga skrefið og styðja við samningsferlið. Aðspurður sagðist hann útiloka endurkomu í stjórnmál. thorbjorn@stod2.is
Mest lesið Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Skorað á Sigurð Inga að afturkalla tilmæli Svandísar Innlent Úrslitastund í troðfullri Valhöll Innlent Spenna í Kraganum: Þórdís leggur framtíðina að veði og brotthvarf Guðmundar Árna vekur upp spurningar Innlent Þórdís Kolbrún bar sigur úr býtum í Kraganum Innlent „Ég lagði allt undir“ Innlent Ingveldur skákaði tveimur sitjandi þingmönnum Innlent Enginn handtekinn í tengslum við brunann á Stuðlum Innlent Sverrir Bergmann sækist eftir 3. sæti í Suðurkjördæmi Innlent Þau skipa framboðslista Sjálfstæðismanna í Norðvesturkjördæmi Innlent Fleiri fréttir Þau skipa framboðslista Sjálfstæðismanna í Norðausturkjördæmi Fjallið hafi verið hátt og ekki tekist að klífa það „Ég lagði allt undir“ Ásmundur og Ólöf ræða stöðuna á Stuðlum og framboðslistar Sjálfstæðisflokksins Þau skipa framboðslista Sjálfstæðismanna í Norðvesturkjördæmi Þau taka þátt í prófkjöri Pírata Bryndís Haraldsdóttir tekur þriðja sætið Samþykktu framboðslista Sjálfstæðismanna í Suðurkjördæmi Græningjar vilja fara fram í öllum kjördæmum Jens í fyrsta og Njáll Trausti í öðru Bjarkey gefur ekki kost á sér Þórdís Kolbrún bar sigur úr býtum í Kraganum Björn hafði betur gegn Teiti Sanna leiðir lista Sósíalistaflokks í Reykjavík suður Ingveldur skákaði tveimur sitjandi þingmönnum Guðrún oddviti og Vilhjálmur í öðru sæti í Suðurkjördæmi Miðbær með skautasvelli byggður í Þorlákshöfn Teitur dregur oddvitaframboðið til baka Flutningurinn góður fyrir Framsókn en slæmur fyrir Sjálfstæðisflokk Biðla til fólks að sýna virðingu í nýopnaðri Grindavík Gerðu allt klárt fyrir Stuðlahópinn á örfáum klukkustundum Úrslitastund í troðfullri Valhöll Sverrir Bergmann sækist eftir 3. sæti í Suðurkjördæmi Útiloka ekki samstarf en segja málefnin skipta mestu máli Spáir því að Bjarni gangi til liðs við Miðflokkinn Sjálfstæðisflokkurinn ekki lengur sú breiðfylking sem hann var Starfsmaðurinn ekki í lífshættu og barátta um annað sætið í Kraganum Enginn handtekinn í tengslum við brunann á Stuðlum Sigríður Andersen leiðir lista Miðflokksins Stjórnmálin á Sprengisandi í dag Sjá meira
Spenna í Kraganum: Þórdís leggur framtíðina að veði og brotthvarf Guðmundar Árna vekur upp spurningar Innlent
Spenna í Kraganum: Þórdís leggur framtíðina að veði og brotthvarf Guðmundar Árna vekur upp spurningar Innlent