Erlent

Gaf sjálfur leyfi til pyntinga

George W. Bush
George W. Bush
George W. Bush, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, segist sjálfur bera ábyrgð á ákvörðun um að vatnspyntingar voru notaðar við yfirheyrslur á fanga sem grunaður er um aðild að hryðjuverkaárásum á Bandaríkin haustið 2001. Þetta kemur fram í sjálfsævisögu hans, sem kemur út á næstu vikum. Bandaríska dagblaðið Washington Post skýrði frá þessu í gær.

Hann segist hafa svarað því játandi, þegar leyniþjónustumenn spurðu hvort beita ætti þessari pyntingaraðferð á Khalid Sheikh Muhammed, sem enn situr í Guantanamo-fangabúðunum á Kúbu.- gb



Fleiri fréttir

Sjá meira


×