Innlent

Karlmaður komst lífs af úr eldsvoða

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Karlmaður komst lífs af þegar að íbúðarhúsnæði brann til grunna á Hofsós í nótt. Maðurinn vaknaði við reykskynjara og braut sér leið út úr húsinu í gegnum glugga. Hann særðist við það á höndum.

Lögreglan og slökkvilið fengu tilkynningu um brunann um klukkan hálfsex í morgun og var allt tiltækt slökkvilið umsvifalaust sent á staðinn. Slökkvistarfi lauk um klukkustund síðar og hafði þá allt brunnið sem brunnið gat og eftir stóð einungis steyptur strompurinn á húsinu. Húsið var gamalt einbýlishús sem hefur verið í endurnýjun.

Maðurinn var fluttur á Heilbrigðisstofnun Sauðárkróks og verður þar til eftirlits í dag.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×