Sjái til þess að kjörin skerðist ekki 7. desember 2010 04:00 Sævar Gunnarsson
Það er á ábyrgð stjórnvalda að sjá til þess að kjör sjómanna skerðist ekki þó að sjómannaafslátturinn verði afnuminn.Þetta kemur fram í ályktun nýafstaðins þings Sjómannasambands Íslands. Afnámi afsláttarins er harðlega mótmælt og ákvörðunin sögð aðför að sjómönnum. Er þess krafist að stjórnvöld ræði við útgerðarmenn um fyrirkomulag sjómannaafsláttarins og kostnaðarskiptingu milli ríkis og útgerða. Því er hafnað að sjómönnum sé ætlað að sækja á útgerðina um bætur. Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, fær að finna til tevatnsins hjá sjómönnum. Er hann sagður lítilsvirða sjómenn ítrekað með því að leita ekki eftir áliti samtaka þeirra þegar fjallað er um málefni sjávarútvegsins, hugmyndum hans um að svipta sjómenn aflaheimildum er alfarið hafnað, skorað er á hann að hætta við að banna dragnótaveiðar og ákvörðun hans um frjálsar rækjuveiðar er mótmælt. Sjómenn minna stjórnvöld á skýrslu nefndar til að ná meiri sátt um stjórnkerfi fiskveiða. „Ekki verður séð á athöfnum stjórnvalda að mark eigi að taka á ábendingum nefndarinnar. Þvert á móti virðist sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra leggja sig fram um að hunsa meirihlutaálit nefndarinnar,“ segir í ályktun. Þá leggur Sjómannasambandið áherslu á að afdráttarlaust ákvæði um þjóðareign á náttúruauðlindum verði fært í stjórnarskrá.- bþs
Mest lesið Í blóma lífsins þegar hann lést í Fnjóská Innlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Vaktin: Selenskíj heimsótti Ísland og fundaði með forsætisráðherrum Innlent Vannærð og veik af áfengisneyslu eftir vetursetu í Evrópu Innlent Ný könnun: Viðreisn og Flokkur fólksins í hæstu hæðum Innlent Smitaðist fimm mánaða en lifir nú eðlilegu lífi Innlent Snorri sakar Hallgrím um ofureinfaldanir Innlent Þrír fluttir á sjúkrahús eftir þriggja bíla árekstur við álverið Innlent „Getum við verið sammála um að vera ósammála?“ Innlent „Það var annað hvort þetta eða vændi“ Innlent Fleiri fréttir Vitað mál að allir flokkar berjist ekki fyrir almannahag Þotur ráðherranna í krefjandi lendingum Karl Gauti og Ólafur Ísleifsson snúa aftur „Mér brá svolítið þegar ég sá þetta“ Verkfall lækna gæti hafist 18. nóvember Svona var dagur Selenskíjs á Íslandi „Ég skil vel foreldra sem eru í vandræðum“ Smitaðist fimm mánaða en lifir nú eðlilegu lífi „Aldrei gott að toppa of snemma“ Fer í leyfi sem formaður VR Heimsókn Úkraínuforseta og kennaraverkföll „Það var annað hvort þetta eða vændi“ Þau eru í framboði til Alþingis 2024 Snorri sakar Hallgrím um ofureinfaldanir Verkföll hefjast á morgun: „Þetta er þvílíkur ómöguleiki“ „Er það ekki það sem fíkniefnasali gerir? Selur fíkniefni?“ Vaktin: Selenskíj heimsótti Ísland og fundaði með forsætisráðherrum Virðist sem D hafi náð að hægja á blæðingunni til M Vopnaðir lögreglumenn standa vaktina Inga Sæland ætlar með Flokk fólksins upp í fimmtán prósent Bjarni fundar með forseta Úkraínu í dag Ný könnun: Viðreisn og Flokkur fólksins í hæstu hæðum Kaupa tilbúinn mat á meðan E.coli sýkingin er til rannsóknar Glóðvolg Maskínukönnun kynnt í hádegisfréttum Bylgjunnar Falla tímabundið frá ákæru fyrir tilraun til manndráps Rekja stuld á korti af Ísrael úr Seltjarnarneskirkju til átakanna Þrjú börn á gjörgæslu vegna E.coli sýkingar „Getum við verið sammála um að vera ósammála?“ Grímur, Halla Hrund, Jens Garðar og Víðir mæta í Pallborðið Þröng á þingi í umfangsmiklu fíkniefnamáli Sjá meira