Hafnar gagnrýni á skipan sonar síns 26. nóvember 2010 03:00 Jón Bjarnason
Jón Bjarnason, sjávar- og landbúnaðarráðherra var gagnrýndur á Alþingi í gær fyrir að skipa Bjarna son sinn í starfshóp um dragnótaveiðar í Skagafirði. Efaðist Ásbjörn Óttarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, um hæfi Bjarna vegna fyrri aðkomu hans að málaflokknum sem sveitarstjórnarmaður og vildi að ráðherrann svaraði því hvort hann teldi skipan sonarins vera góða stjórnsýslu. Í yfirlýsingu sem Jón Bjarnason sendi frá sér í gær segir ráðherrann að það hafi ekki verið hann sem ákvað hverjir tóku sæti í starfshópnum heldur hafi viðkomandi verið tilnefndir af Hafrannsóknastofnun, sjávarlíftæknisetrinu BioPol og Veiðimálastofnun. Bjarni sem er fiskifræðingur var tilnefndur af Veiðimálastofnun. „Þá er rétt að það komi fram að umræddur starfshópur er ekki launaður sérstaklega heldur er um að ræða fast starf viðkomandi fyrir ofantaldar stofnanir,“ segir í yfirlýsingu ráðherrans. Til harðra orðaskipta kom um málið í gær sem náðu hámarki þegar Siv Friðleifsdóttir, varaforseti Alþingis, vék Jóni úr ræðustóli fyrir að virða ekki tímamörk. - gar
Mest lesið Um átta þúsund norður-kóreskir hermenn á landamærunum Erlent Horfði á lík fljóta fram hjá Erlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Dómur fyrir að nauðga fermingarstúlkum staðfestur Innlent Stefna ríkinu vegna framgöngu lögreglu Innlent Steinþór „svo skelfdur eða forviða“ að hann gat ekki gætt sín Innlent Sigurður handtekinn í stærsta kristal-amfetamínmáli sögunnar Innlent Matráður segir upp á Mánagarði Innlent Þrír fluttir á slysadeild eftir árekstur við Húnaver Innlent „Tifandi tímasprengjur“ á leið út í samfélagið Innlent Fleiri fréttir Stefna ríkinu vegna framgöngu lögreglu Flokkshollusta á undanhaldi Þrír fluttir á slysadeild eftir árekstur við Húnaver Mikið vinnuálag til að ná launum upp sem læknir Kristrún hefur beðið Dag afsökunar Steinþór „svo skelfdur eða forviða“ að hann gat ekki gætt sín Tæpur helmingur grunnskóla hefur bannað síma Læknar í verkfall, ellefu framboð og hrekkjavaka í Vesturbæ Máttu ekki selja eldaðan mat Sigurður handtekinn í stærsta kristal-amfetamínmáli sögunnar Sigurjón leiðir í Norðausturkjördæmi „Tifandi tímasprengjur“ á leið út í samfélagið Læknar á leið í verkfall Guðmundur Ingi leiðir og skrifstofustjórinn í öðru Dómur fyrir að nauðga fermingarstúlkum staðfestur Viðsnúningur í manndrápsmáli í Landsrétti Formaður Lýðræðisflokksins sagður misbeita samsæriskenningu „Pabbi minn hefði örugglega orðið reiður“ Fékk slá í höfuðið og málið fer fyrir Hæstarétt Borgarfulltrúi skipar annað sætið í kjördæmi formannsins Risastór ákvörðun íbúa í Þorlákshöfn handan við hornið Hvetja Ísland til að draga enn frekar úr losun Stórt skref stigið í átt að fullgildri aðild Færeyja, Álandseyja og Grænlands Framboðslisti Flokks fólksins í Suðurkjördæmi birtur Á ekki von á að þeim fjölgi sem þurfi innlögn vegna E.coli Fækka áramótabrennum í Reykjavík um fjórar Þau skipa framboðslista Pírata í kosningunum Bein útsending: Vítt og breitt um almannavarnamál „Þegar þú liggur yfir þessu dag og nótt þá byrjar þú að þekkja þá“ Máttu ekki hvetja hlunnfarið starfsfólk til að hætta Sjá meira