Innlent

Slegist á Akranesi um helgina

Talsverðar róstur fylgdu skemmtanahaldi á Akranesi um síðustu helgi að sögn lögreglu og þurfti að hafa afskipti af mönnum sem var orðið heitt í hamsi.

Einn þurfti að flytja á sjúkrahús eftir slagsmál og virtist hann nefbrotinn. Í þremur tilfellum þurfti að færa menn á lögreglustöð á meðan þeim rann móðurinn en einn þeirra hafði meðal annars tekið sig til og brotið rúður og sparkað í bíl.

Þá var nokkuð um hraðakstur í bænum um síðustu viku og voru átta ökumenn kærðir fyrir að fara yfir mörkin, sem lögregla segir að verði að teljast nokkuð mikið í ljósi þess að aðstæður til aksturs hafa ekki verið upp á það besta að undaförnu. Einn var staðinn að ölvunarakstri.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×