Vilja draga ESB-umsókn til baka - tillaga lögð fram eftir áramót Þorbjörn Þórðarson skrifar 26. desember 2010 18:45
Tillaga um að umsókn Íslands að Evrópusambandinu verði dregin til baka verður lögð fram á Alþingi eftir áramót. Unnur Brá Konráðsdóttir þingmaður Sjálfstæðisflokksins leggur tillöguna fram. Fyrrverandi formaður segir tómarúm í flokknum varðandi Evrópumálin og kallar eftir forystu. Þorsteinn Pálsson segir að ákveðið tómarúm sé á stóru svæði í Sjálfstæðisflokknum meðal þeirra sem fylgja ESB-málinu. Hann vonast til þess að það takist að virkja þennan kraft á hægri væng stjórnmálanna, þ.e kraft þeirra sem eru hlynntir því að klára samningsferlið. Þetta sagði hann í þættinum á Sprengisandi á Bylgjunni í morgun. Þessi kraftur sem Þorsteinn vísar til er áhugi sjálfstæðismanna í atvinnulífinu um að Evrópumálin verði kláruð og áhugi innan þingflokksins. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir sat hjá og Ragnheiður Ríkharðsdóttir greiddi atkvæði með þegar Alþingi samþykkti að sækja um aðild að Evrópusambandinu. Þorgerður Katrín vill klára aðildarferlið og segir að við eigum að hætta með þennan hringlandahátt í kringum Evrópumálin. Þessari skoðun lýsti hún í Morgunblaðinu. Fleiri eru að skoða sína stöðu. Það er hins vegar annað afl á hreyfingu. Síðasta vor lagði Unnur Brá Konráðsdóttir, þingmaður flokksins í Suðurkjördæmi, fram tillögu um að draga umsókn um aðild til baka en slík tillaga komst aldrei á dagskrá. Hún hefur nú endurbætt og umskrifað tillöguna. Í stjórnarskránni kemur fram að þingmenn séu aðeins bundnir af sinni eigin sannfæringu. Unnur Brá, sem er á móti aðild að ESB, sagðist líta svo á að það væri hlutverk þingmanna flokksins að framfylgja ályktunum landsfundar og því legði hún tilllöguna fram. Hún sagðist meta stöðuna þannig að mikill stuðningur væri við slíka tillögu í þingflokknum. Flokkurinn ályktaði á landsfundi að draga ætti umsóknina til baka. Unnur Brá sagði aðspurð að Bjarni Benediktsson hefði ekki beðið hana um að hætta við að leggja tillöguna fram. Samkvæmt heimildum Stöðvar 2 innan úr þingflokki Sjálfstæðisflokksins hafa einhverjir þingmanna af því áhyggjur að slík tillaga muni skapa óánægju og valda deilum innan flokksins. Stöð 2 hefur heimildir fyrir því að margir stjórnarliðar vilji fá tillöguna og afgreiða hana því þeir séu fullir sjálfstrausts og hafi enga trú á því að hún verði samþykkt. thorbjorn@stod2.is
Mest lesið Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Skorað á Sigurð Inga að afturkalla tilmæli Svandísar Innlent Úrslitastund í troðfullri Valhöll Innlent Spenna í Kraganum: Þórdís leggur framtíðina að veði og brotthvarf Guðmundar Árna vekur upp spurningar Innlent Þórdís Kolbrún bar sigur úr býtum í Kraganum Innlent „Ég lagði allt undir“ Innlent Ingveldur skákaði tveimur sitjandi þingmönnum Innlent Enginn handtekinn í tengslum við brunann á Stuðlum Innlent Sverrir Bergmann sækist eftir 3. sæti í Suðurkjördæmi Innlent Þau skipa framboðslista Sjálfstæðismanna í Norðvesturkjördæmi Innlent Fleiri fréttir Þórunn gefur eftir oddvitasæti og fer í þriðja sæti Þau skipa framboðslista Sjálfstæðismanna í Norðausturkjördæmi Fjallið hafi verið hátt og ekki tekist að klífa það „Ég lagði allt undir“ Ásmundur og Ólöf ræða stöðuna á Stuðlum og framboðslistar Sjálfstæðisflokksins Þau skipa framboðslista Sjálfstæðismanna í Norðvesturkjördæmi Þau taka þátt í prófkjöri Pírata Bryndís Haraldsdóttir tekur þriðja sætið Samþykktu framboðslista Sjálfstæðismanna í Suðurkjördæmi Græningjar vilja fara fram í öllum kjördæmum Jens í fyrsta og Njáll Trausti í öðru Bjarkey gefur ekki kost á sér Þórdís Kolbrún bar sigur úr býtum í Kraganum Björn hafði betur gegn Teiti Sanna leiðir lista Sósíalistaflokks í Reykjavík suður Ingveldur skákaði tveimur sitjandi þingmönnum Guðrún oddviti og Vilhjálmur í öðru sæti í Suðurkjördæmi Miðbær með skautasvelli byggður í Þorlákshöfn Teitur dregur oddvitaframboðið til baka Flutningurinn góður fyrir Framsókn en slæmur fyrir Sjálfstæðisflokk Biðla til fólks að sýna virðingu í nýopnaðri Grindavík Gerðu allt klárt fyrir Stuðlahópinn á örfáum klukkustundum Úrslitastund í troðfullri Valhöll Sverrir Bergmann sækist eftir 3. sæti í Suðurkjördæmi Útiloka ekki samstarf en segja málefnin skipta mestu máli Spáir því að Bjarni gangi til liðs við Miðflokkinn Sjálfstæðisflokkurinn ekki lengur sú breiðfylking sem hann var Starfsmaðurinn ekki í lífshættu og barátta um annað sætið í Kraganum Enginn handtekinn í tengslum við brunann á Stuðlum Sigríður Andersen leiðir lista Miðflokksins Sjá meira
Spenna í Kraganum: Þórdís leggur framtíðina að veði og brotthvarf Guðmundar Árna vekur upp spurningar Innlent
Spenna í Kraganum: Þórdís leggur framtíðina að veði og brotthvarf Guðmundar Árna vekur upp spurningar Innlent