Innlent

Vatnselgur á Suðurlandsvegi

Vatnselgur á Suðurlandsvegi.
Vatnselgur á Suðurlandsvegi.

Mikið vatn flæðir yfir Suðurlandsveg nærri Lambafelli en samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni hefur orðið mikil vatnslosun við Bolöldunámu.

Mikil rigning er á svæðinu en veður er verst á Suðurlandinu. Vatnið flæðir yfir vinnusvæði þar sem unnið er að tvöföldun vegarins.

Lögreglan ásamt Vegagerðinni vinna nú að því að taka Bolölduveg, sem liggur nærri námunni, í sundur til þess að beina vatninu í annan farveg. Fólk er hvatt til þess að fara varlega en Suðurlandsvegurinn er enn fær þrátt fyrir vatnavextina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×