Innlent

Landlæknir og Lýðheilsustöð sameinast um áramótin

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Guðbjartur Hannesson lagði fram frumvarp um sameininguna í gær.
Guðbjartur Hannesson lagði fram frumvarp um sameininguna í gær.
Embætti Landlæknis verður sameinuð Lýðheilsustöð um áramótin. Guðbjartur Hannesson heilbrigðisráðherra lagði fram frumvarp þessa efnis á Alþingi í gær.

Í athugasemdum við frumvarpið segir að báðar þessar stofnanir sinni ráðgjöf um heilbrigðismál til stjórnvalda og almennings, gefi út leiðbeiningar um vinnulag og framkvæmd verkefna og sinni rannsóknum. Því sé raunsætt að sameina þessar stofnanir og þannig skapa tækifæri til að styrkja og efla starf þeirra enn frekar en nú sé.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×