Innlent

Flogið til Bíldudals - Ísafjarðarflugi aflýst

Mynd úr safni.
Mynd úr safni.

Flugfélagið Ernir flaug frá Reykjavíkurflugvelli til Bíldudals í dag en það er eina innanlandsflugið sem af er degi. Allt innanlandsflug Flugfélags Íslands hefur legið niðri í dag vegna vonskuveðurs.

Samkvæmt upplýsingum frá Örnum þá verður næst athugað með flug til Sauðárkróks klukkan 15:15. Á sama tíma verður kannað hvort unnt verði að fljúga til Hafnar.

Þá verður skoðað hvort mögulegt sé að fljúga til Vestmannaeyja klukkan 17:30 í dag.

Flugfélag Íslands hefur aflýst flugi til Ísafjarðar. Flug til Akureyrar og Egilsstaða verður endurskoðað klukkan þrjú. Flug til Akureyrar klukkan 16:45 er á áætlun.

Samkvæmt upplýsingum frá Flugfélagi Íslands í morgun þá eru miklir háloftavindar og ísing í lofti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×