Erlent

Þú verður víst blindur af því

Óli Tynes skrifar

Það tók lækna í Danmörku nokkurn tíma að komast að því hvað olli því að maður sem leitaði til þeirra varð alltaf blindur um stund eftir að hann fékk kynferðislega fullnægingu. Það lagaðist svo fljótlega og sjónin var í ágætu lagi þartil hann fékk fullnægingu næst. Það vakti nokkra furðu læknanna að önnur líkamleg áreynsla hafði engin áhrif á sjónina.

Augnlæknar við Glostrup sjúkrahúsið við Háskólann í Kaupmannahöfn komust loks að því að það sem hrelldi manninn var æðaþrengsli við augun. Vöðvarnir við augun hertu svo að æðunum þegar maðurinn fékk fullnægingu að blóðrásin stöðvaðist. Þetta kallast „vasoconstriction" á fagmáli og mun einnig vera að baki risvanda hjá karlmönnum. Læknar komust fyrir vandann hjá sjúklingnum með því að gefa honum lyf sem víkkaði æðar hans.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×