Innlent

Hlín Einars fór úr axlarlið Í bítinu í morgun

Hlín Einarsdóttir er ritstjóri vefritsins bleikt.is sem fer í loftið á næstunni
Hlín Einarsdóttir er ritstjóri vefritsins bleikt.is sem fer í loftið á næstunni
Allt getur gerst í útvarpinu eins og Hlín Einarsdóttir, ritstjóri Bleikt.is, fékk að reyna í morgun þegar hún kom til þeirra Heimis Karlssonar og Þráins Steinssonar Í bítið á Bylgjunni. Til stóð að Hlín myndi ræða við þá félaga um nýja vefinn sem hún ritstýrir en áður en til þess kom fór hún úr axlarlið og var ekið brott í sjúkrabíl.

„Ég hef aldrei séð svona hart gengið að viðmælanda að það hafi þurft að senda hann í sjúkrabíl," sagði Þráinn á léttu nótunum.

„Það er ekki hlæjandi að þessu. En hún var samt með bros á vör," bætti Heimir við.

Hlín hafði rétt fengið sér sæti og var að gera sit tilbúna til að svara spurningum Þráins og Heimis þegar hún teygði sig fram og fór úr axlarlið.

„Hún bara verður öll stjörf," sagði Þráinn sem sá að hún var alveg sárþjáð.

Heimir tók líka eftir því að ekki var allt með felldu hjá Hlín þegar hún var að teygja sig og hélt hann fyrst að það hefði bara hlaupið eitthvað í öxlina á henni, svona eins og gengur og gerist. „Nei, þá fór vinan bara úr axlarlið," sagði Heimir, og bætti við að þeir hefðu snarlega hringt á sjúkrabíl.

„Það má geta þess að Hlín hefur áður farið úr axlarlið, bara mörgum sinnum," sagði Heimir

Hann óskaði Hlín síðan alls hins besta og sagðist vona að hún myndi ná sér sem allra fyrst.

Þáttinn Í bítið frá morgninum má hlusta á með því að smella á tengilinn hér að ofan. Það var þegar um níutíu mínútur voru liðnar af þættinum sem áætlað var að Hlín myndi ræða um nýja vefinn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×