Innlent

Brotist inn í íbúðahús í Kópavogi

Brotist var inn í íbúðarhús í Kópavogi síðdegis í gær eða í gærkvöldi, en íbúarnir urðu þess ekki varir fyrr en þeir komu heim upp úr miðnætti.

Lögregla telur ekki útilokað að innbrotið tengist ellefu innbrotum, sem framin hafa verið í heimahús í Hafnarfirði og Garðabæ að undanförnu, öll síðdegis eða á kvöldin.

Þar hefur meðal annars verið stolið skartgripum, stafrænum myndavélum og tölvum. Lögregla biður fólk að vera vakandi fyrir grunsamlegri mannaferð við hús nágranna sinna og gera lögreglu viðvart.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×