Innlent

Íslendingar og Bretar í samstarf vegna eldgosa

Íslendingar og Bretar hafa undirritað viljayfirlýsingu um samstarf þjóðannna á sviði rannsókna og eftirlits með eldsumbrotum á Íslandi og umhverfisáhrifa og hættu af völdum þeirra.

Magnús Jóhannesson, ráðuneytisstjóri umhverfisráðuneytisins og Ian Whitting, sendirherra Bretlands á Íslandi, viljayfirlýsinguna í dag en hún er gerð í kjölfar vaxandi samstarfs íslenskra og breskra vísindamanna í tengslum við eldgosið í Eyjafjallajökli. „Vísindamenn frá Bresku veðurstofunni, Bresku jarðfræðistofnuninni og fleiri breskum stofnunum komu hingað til lands í vor þegar Eyjafjallajökull gaus og hittu íslenska vísindamenn og skiptust á upplýsingum og þekkingu," segir í tilkynningu frá umhverfisráðuneytinu.

„Upplýsingar frá íslenskum vísindamönnum reyndust mikilvægar í starfi breska Neyðarvísindaráðsins (SAGE) sem sir John Beddington, vísindaráðgjafi bresku ríkisstjórnarinnar, fer fyrir. SAGE var skipað jarðfræðingum, veðurfræðingum og loftslagsvísindamönnum. Ráðið veitti bresku ríkisstjórninni upplýsingar um eldgosið í Eyjafjallajökli og ráðgjöf um viðbrögð við því," segir einnig.

Þá kemur fram að Veðurstofa Íslands hefur þegar undirritað viljayfirlýsingar um samstarf við Bresku veðurstofuna, Bresku jarðfræðistofnunina og Breska veðurrannsóknarsetrið. Auk þess hefur Breska veðurstofan gert samning við Bresku loftferðastofnunina um rannsóknir á öskuskýjum með flugvélum þegar annað eldgos hefst á Íslandi.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×