Innlent

Brotist inn í Heilbrigðisstofnun Suðurnesja

Brotist var inn í Heilbrigðisstofnun Suðurnesja undir morgun, en öryggisvörður varð þjófsins var og hélt honum þar til lögregla kom á vettvang og handtók hann.

Talið er víst að hann hafi ætlað að stela þar lyfjum og verður hann yfirheyrður í dag.

Annar þjófur var á ferð í Mosfellsbæ í gærkvöldi og stal sá talsverðu af verkfærum úr húsi, sem er í byggingu. Hann komst undan og er ófundinn.-






Fleiri fréttir

Sjá meira


×