Neyðarútgangurinn skrúfaður fastur 16. desember 2010 06:00 Eigandinn hefur verið ákærður fyrir brot á lögum um brunavarnir. „
Svona umbúnaður öryggismála á samkomustað flokkast hreinlega undir glæpsamlegt athæfi,“ segir Þorbjörn Haraldsson, slökkviliðsstjóri á Akureyri, um það hvernig allar flóttaleiðir á skemmtistaðnum Sjallanum voru ófærar þegar húsinu var lokað fyrr á þessu ári. Lögreglustjórinn á Akureyri hefur nú ákært eiganda Sjallans, mann á sextugsaldri, fyrir brot gegn lögum um brunavarnir. Í ákærunni kemur fram að aðfaranótt sunnudagsins 21. febrúar hafi Sjallinn verið opinn fyrir almennt skemmtanahald með brunavarnir á skemmtistaðnum í miklum ólestri. „…þegar slökkviliðsstjórinn á Akureyri skoðaði eldvarnir hússins að beiðni lögreglu, komu í ljós meðal annars eftirtaldir ágallar á brunavörnum, til dæmis hafði neyðarútgangur á suðausturhorni hússins verið skrúfaður fastur og aðrar flóttaleiðir gesta voru ýmist bilaðar, eða hindraðar með stólum, bjórkútum, snjó og fleiru og slökkt hafði verið á brunavarnarkerfinu,“ segir enn fremur í ákærunni. „Staðnum var lokað um leið og þetta kom í ljós,“ segir Þorbjörn. „Eigendur fengu ekki að opna staðinn aftur fyrr en því var lokið og öllum kröfum byggingafulltrúa og eldvarnareftirlits hafði verið mætt.“ Eigendur Sjallans virðast lítið hafa lært af reynslunni eftir að staðurinn varð eldi að bráð rétt fyrir jólin 1981. Þorbjörn segir brunavarnir á ábyrgð húseigenda. Menn fái rekstrarleyfi til nokkurra ára í senn, sem þurfi síðan að endurnýja. Húseigendur þurfi engu að síður að tryggja að ástand og öryggismál hússins drabbist ekki niður á þessum tíma. „Þetta var ágætis áminning fyrir alla því margir veitingahúsaeigendur stukku af stað og bættu úr sínum málum eftir að þetta kom upp,“ útskýrir Þorbjörn og kveður Slökkviliðið á Akureyri hafa bætt sitt verklag og fjölgað óvæntum skoðunum á eldvörnum skemmtistaða um helgar þegar þeir séu í fullum rekstri.- jss
Mest lesið Geir Örn lést á Stuðlum Innlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Hafnað vegna of margra lækna og miðaldra karla Innlent Skoða hvort lög hafi verið brotin við rannsókn lögreglu Innlent Sonurinn áður stungið föður sinn í bakið Innlent Loka hjúkrunarheimilinu Roðasölum: „Ég er miður mín að lesa þetta“ Innlent Rósa Björk snýr aftur og Katrín á lista VG Innlent Ákærður fyrir ítrekuð brot gegn nákomnu stúlkubarni Innlent Ógnarstór loftsteinaárekstur eins og áburður fyrir líf á jörðinni Erlent Valdníðsla og hneyksli Innlent Fleiri fréttir Ásókn karla á lista Samfylkingarinnar geti reynst flokknum erfið Með í maganum og stígur út fyrir þægindarammann Fleiri vilja sjá Þórdísi eða Guðlaug leiða í stað Bjarna Augljóslega veikir einstaklingar verði veikari í fangelsi Aldrei fleiri manndráp á einu ári: „Þetta er uggvænleg þróun“ Ákærður fyrir ítrekuð brot gegn nákomnu stúlkubarni Tæplega þrjátíu börn í virku eftirliti Valdníðsla og hneyksli Kunnugleg andlit á lista Framsóknar í Norðvesturkjördæmi Metfjöldi manndrápsmála, æsispennandi kosningar og tónlist í beinni Rósa Björk snýr aftur og Katrín á lista VG Gerir engar kröfur um ráðherrastól Gerði ekki kröfu um oddvitasæti og fær annað sætið Hafnað vegna of margra lækna og miðaldra karla Dæmdur fyrir hatursorðræðu gegn Samtökunum '78 Dagur mun ekki skipa oddvitasæti í Reykjavík Ragna fær annað sætið í Reykjavík suður Viðgerðin á flugvél Gæslunnar kostaði 350 milljónir króna Þrúgandi þögn fyrir stóru ákvörðun Kristrúnar „Hættan af þessum mönnum var þekkt” Kynferðisofbeldi gegn börnum með notkun gervigreindar Fleiri dæmi um alvarlega árás á móður sína Gagnlegt að sjá hvernig Sjálfstæðisflokkurinn umgengst völd Páll leitar til ríkissaksóknara Beiðni um leyfi til hvalveiða liggur þegar fyrir Skoðaði hvað fólk gerði á Facebook án samþykkis Umsókn frá Kristjáni á borði Jóns og Bjarna Árásarmaðurinn á Dubliner fær ekki áheyrn í Hæstarétti Geir Örn lést á Stuðlum Loka Fjölskyldulandi í næstu viku Sjá meira