Innlent

Slasaðist í álverinu á Reyðarfirði

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Slysið varð í öðrum kerskálanum í álverinu á Reyðarfirði. Mynd/ Hreinn Magnússon.
Slysið varð í öðrum kerskálanum í álverinu á Reyðarfirði. Mynd/ Hreinn Magnússon.
Ung kona slasaðist í álverinu á Reyðarfirði eftir hádegi á laugardaginn þegar að bíl var bakkað á hana inni í öðrum kerskálanum. Samkvæmt upplýsingum Vísis mjaðmagrindabrotnaði konan við slysið. Hún var flutt á Fjórðungssjúkrahúsið á Neskaupsstað og þaðan með sjúkraflugi til Reykjavíkur til frekara eftirlits.

„Það er hræðilega sorglegt að þetta skyldi gerast. Við tökum svona hluti mjög alvarlega og höfum þá stefnu að koma í veg fyrir öll svona slys," segir Erna Indriðadóttir, framkvæmdastjóri samfélags- og upplýsingamála hjá Alcoa. Hún segir að tildrög slyssins verði rannsökuð eins og lög geri ráð fyrir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×