Innlent

Húshitun mun ódýrari á Íslandi en á Norðurlöndunum

Ef miðað er við meðaltals orkuþörf fyrir 135 fermetra einbýlishús í Reykjavík greiðir slíkt heimili rúmlega 85 þúsund krónur á ári fyrir húshitun og heitt kranavatn.
Ef miðað er við meðaltals orkuþörf fyrir 135 fermetra einbýlishús í Reykjavík greiðir slíkt heimili rúmlega 85 þúsund krónur á ári fyrir húshitun og heitt kranavatn.
Íslendingar búa að miklum mun ódýrari húshitun en nágrannar okkar á hinum Norðurlöndunum.

Ef miðað er við meðaltals orkuþörf fyrir 135 fermetra einbýlishús í Reykjavík greiðir slíkt heimili rúmlega 85 þúsund krónur á ári fyrir húshitun og heitt kranavatn.

Í höfuðborgum hinna Norðurlandanna væri reikningurinn fyrir sömu orkunotkun á bilinu 260 til 530 þúsund krónur, eða 306-623% hærri en í Reykjavík.

Þetta er niðurstaða útreikninga sem Samorka, samtök orku- og veitufyrirtækja, hefur birt á vef sínum.

Í samanburðinum er miðað við gjaldskrá Orkuveitu Reykjavíkur, sem sér meirihluta landsmanna fyrir heitu vatni. Verðið er sambærilegt hjá öðrum jarðhitaveitum hérlendis, en alls eru um 90% húsa á Íslandi hituð með jarðhita.

Þorri þeirra 10% húsa sem ekki hafa aðgang að jarðhita nota rafkyndingu sem alla jafna er dýrari, en nýtur þó niðurgreiðslna og er eftir sem áður mun ódýrari en gengur og gerist í samanburðarlöndum.

Viðmiðun samanburðarins fyrir hin Norðurlöndin eru gjaldskrár stærstu hitaveitna eða orkudreifingarfyrirtækja í höfuðborgum þeirra, það er Helsinki Energi, Hafslund í Osló, AB Fortum í Stokkhólmi og Københavns Energi.

Miðað er við miðgengi Seðlabanka Íslands 16. desember 2010. Hér er sem fyrr segir miðað við meðaltals orkuþörf fyrir upphitun og heitt kranavatn í 135 fermetra einbýlishúsi í Reykjavík, eða 32.000 kWst ársnotkun. Öll verð í samanburðinum eru með virðisaukaskatti og öðrum gjöldum.

Sjá umfjöllun á vef Samorku.


Tengdar fréttir

Raforkuverð í Danmörku nær þrjátíufalt hærra en hér

Raforkuverð til danskra heimila muna fara upp í allt að 15 kr. danskar, eða rúmlega 300 kr., á kílówattstundina milli klukkan fimm og sjö síðdegis í dag. Þetta er nær þrjátíufalt það verð sem íslensk heimili borga fyrir raforkuna í dag en verðið hérlendis er 10,6 kr. á kílówattstundina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×