Innlent

Samstarfið gott

Söngvarinn Friðrik Dór og sjónvarpsmaðurinn Steindi gáfu nýverið út nýtt lag saman. Þeir segja að samstarfið hafi gengið vel. Rætt var við þá í þættinum Ísland í dag að loknum fréttum Stöðvar 2.

Þetta er ekki fyrsta sinn sem þeir félagar starfa saman en þeir gerðu líka lagið Fínn gaur. Myndbandið endaði hins vegar á því að Friðrik Dór var drepinn. „Steindi hringdi í mig þegar ég var að lesa undir próf. Ég hef aldrei talað við jafn æstan mann í síma en þá var hann nýbúinn að fá hugmyndina," sagði Friðrik Dór.

Í viðtalinu, sem hægt er að sjá hér, ræddu félagarnir m.a. um myndbandið við nýja lagið, hárið á Friðriki og úlpuna hans Steinda sem Steindi sagðist hafa keypt í „notaðri búð" í Berlín.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×