Innlent

140 metra brú yfir Markarfljót

Húsadalur í Þórsmörk Áhugamenn vilja göngubrú úr Fljótshlíð í Húsadal.
Húsadalur í Þórsmörk Áhugamenn vilja göngubrú úr Fljótshlíð í Húsadal.
Vinir Þórsmerkur hafa að undanförnu skoðað þá hugmynd að byggð verði göngubrú yfir Markarfljót, að því er segir í erindi hópsins til sveitarstjórnar Rangárþings eystra.

„Um er að ræða um það bil 140 metra brú yfir Markarfljót milli Húsadals og Fljótshlíðar. Áætlað er að þessi framkvæmd verði unnin í nokkrum þrepum á næstu þremur árum,“ segja Vinir Þórsmerkur sem hafa óskað eftir fjármagni frá Alþingi og aðstoð frá Ferðamálastofu vegna brúarbyggingarinnar. - gar



Fleiri fréttir

Sjá meira


×