Innlent

Innbrotahrina á höfuðborgarsvæðinu

Hrina innbrota var á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi og í nótt og náðist þjófurinn í einu tilfellinu. Fyrst var bortist inn í vínbúðina við Skútuvog um klukkan hálf ellefu og nokkrum áfensgisflöskum stolið. Síðan inn í tölvuverslun við Langholtsveg á tólfta tímanum, þaðan sem fartölvu var stolið.

Eftirlitsmyndavéalr náðu glöggum myndum af báðum þjófununum og er þeirra nú leitað. Laust fyrir hálf tvö í nótt var svo tilkynnt um innbort í söluturn við Engihjalla og fundu lögreglumenn þjófinn í felum þar skammt frá, og vistuðu í fangageymslu. Laust upp úr klukkan fimm í nót var svo tilkynnt um innbrot í bílaþvottastöð við Háholt í Mosfellsbæ, en ekki er ljóst hverju var stolið þar






Fleiri fréttir

Sjá meira


×