Innlent

Skeljungur segir upp starfsfólki

Tíu fastráðnum starfsmönnum Skeljungs var sagt upp í dag.
Tíu fastráðnum starfsmönnum Skeljungs var sagt upp í dag.
Átta starfsmönnum á skrifstofu olíufélagsins Skeljungs og tveimur fastráðnum starfsmönnum í dreifingu var sagt upp störfum í dag. Samkvæmt upplýsingum fréttastofu er meirihluti fólksins með margra ára starfsreynslu að baki.

Á níunda tug starfsmanna starfa hjá Skeljungi, samkvæmt heimasíðu fyrirtækisins. Ekki náðist í Einar Örn Ólafsson, forstjóra Skeljungs, við vinnslu fréttarinnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×