Erlent

Trúlofaðist fyrrverandi eiginmanni konunnar sem stal eiginmanni hennar

Óli Tynes skrifar
Shania Twain.
Shania Twain.

Kanadiska söngkonan Shania Twain hefur tekið gleði sína á nýjan leik. Hún varð afar sorgmædd þegar eiginmaður hennar til fjórtán ára, Robert Lange hljópst á brott með annarri konu árið 2008.

Shania hefur nú trúlofast fyrrverandi eiginmanni þeirrar konu að sögn tímaritsins People. Twain sem er 45 ára átti einn son með Lange. Hann er nú níu ára gamall. Nýi kærastinn hennar, Frederick Thiebaud er 40 ára. Hann átti tíu ára gamlan son með hjónadjöflinum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×