Innlent

Reykur úr kjallaraíbúð í Hafnarfirði

Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út á tíunda tímanum í kvöld vegna reyks sem kom út frá kjallaraíbúð í miðbæ Hafnarfjarðar. Tveir slökkviliðsbílar og einn sjúkrabíll voru sendir á staðinn.

Í ljós kom að lítill sem enginn eldur var í íbúðinni. Slökkviliðsmenn voru þó áfram á staðnum og reykræstu íbúðina. Ekki er vitað um tildrög eldsins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×