Innlent

Beindu lasergeisla að Fokker- flugvél í aðflugi

Lasergeislinn hefði getað truflað flugmanninn og stefnt öryggi fólks um borð í bráða hættu.
Lasergeislinn hefði getað truflað flugmanninn og stefnt öryggi fólks um borð í bráða hættu.

Lasergeisla var beint að stjórnklefa Fokker flugvél frá Flugfélagi Íslands þegar hún var í aðflugi að Akureyrarflugvelli, með marga farþega um borð, um klukkan hálf átta í gærkvöldi, en slíkt getur haft truflandi áhrif á flugmenn.

Lögreglu var tilkynnt um atvikið og töldu flugmennirnir að geislanum hafi verið beint frá sumarbústaðabyggð sunann við Vaðlahof, í Vaðlaheiðinni. Lögregla hélt þegar á staðinn og sá þar ný bílför, en hvergi sást til bíls og engin var í bústöðunum.

Hún lýsir eftir upplýsingum um mannaferðir á þessum slóðum í gærkvöldi, enda er málið litið mjög alvarlegum augum þar sem slíkt getur stefnt öryggi farþega og áhafnar í bráða hættu.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×