Erlent

Önnur Quantas þota í vandræðum

MYND/AFP
Boeing 747 þota frá ástralska flugfélaginu Quantas þurfti að snúa við skömmu eftir flugtak í Singapore og lenda vegna vélarbilunar. Í gær nauðlenti Airbus A380 þota frá sama félagi á sama flugvelli þegar einn hreyfill vélarinnar sprakk í loft upp. Í kjölfarið voru allar vélar félagsins sömu gerðar kyrrsettar. Vélin í dag var á leið til Sidney og náði hún að lenda án vandræða.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×