Innlent

Brynjari líst ekkert á stofnun Evu Joly

Formaður Lögmannafélags Íslands gefur lítið fyrir hugmyndir um stofnun Evu Joly á Íslandi og segir nærtækara að Norðmenn eða Frakkar skjóti stofnun undir konuna, sem eytt hafi örfáuum dögum á Íslandi.

Brynjar Níelsson formaður Lögmannafélags Íslands og hæstaréttarlögmaður segir í bloggi sínu á Pressunni að hann hafi séð á einhverjum vefmiðlinum að félagsskapur áhugamanna um skoðanir og hugðarefni Evu Joly hefðu í hyggju að koma á fót Stofnun, sem bæri nafn hennar. Markmiðið væri hvorki meira né minna en alþjóðleg rannsóknarstofnun sem einbeitti sér að lýðræði, réttlæti og fjölmiðlafrelsi, eins og að slík fyrirbæri væru á einkaleyfaskrá Evu.

Brynjar segir engan skort á vera á alls konar alþjóðlegum stofnunum um lýðræði og fjölmiðlafrelsi og réttlátt þjóðfélag. Oftast væru þær kenndar við fólk sem hefur lagt eitthvað sérstakt til málefnisins og barist fyrir því árum saman. Pólitísk forsaga Evu gefi ekki tilefni til að ætla að framangreind málefni hafi verið henni sérstaklega hugleikin. Gamlir kommúnistar og vinstri sósialistar hafi ekki verið sérlega uppteknir af lýðræði og fjölmiðlafrelsi eins og vestræn lýðræðisríki hafi túlkað þau hugtök. Þeir voru hins vegar gjarnan með réttlætið að vopni í baráttu sinni, þótt sitt hafi hverjum sýnst um þann réttlætisboðskap.

Brynjar spyr hvers vegna Íslendingar ættu að koma á fót stofnun um hugðarefni Evu Joly. Konan hafi verið hér á landi í nokkra sólarhringa samtals sem ráðgjafi við rannsókn sakamála. Það væri nær að Norðmenn og Frakkar settu fót slíka stofnun, en í þeim löndum hefur hún búið og starfað alla sína tíð.

Ekki kæmi á óvart að Háskóli Íslands yrði notaður sem vettvandur fyrir alþjóðlega ráðstefnu, sem orð leikur á að eigi að halda hér á landi í mars á næsta ári, vegna opnunar Stofnunar Evu Joly. Það yrði þá ekki í fyrsta sinni sem sú ágæta menntastofnun er misnotuð í pólitískum tilgangi, að mati Brynjars Níelssonar.












Fleiri fréttir

Sjá meira


×