Handbolti

Ásgeir Örn samdi við Faaborg HK í Danmörku

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Mynd/DIENER

Landsliðsmaðurinn Ásgeir Örn Hallgrímsson er búinn að fá nýja vinnu en hann samdi í dag við danska B-deildarliðið Faaborg HK.

Ásgeir Örn mun leika með félaginu til loka leiktíðar. Hann er þriðji leikmaður GOG sem semur við félagið en áður höfðu danski landsliðsmaðurinn Kasper Nielsen og Jakob Larsen samið við félagið.

Þáverandi félag Ásgeirs Arnar, GOG, er sem kunnugt er gjaldþrota og þurftu Ásgeir og félagar því að leita sér að nýju félagi.

Ásgeir Örn er þegar kominn til móts við nýja félagið og æfði með nýju liðsfélögunum í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×