Innlent

Búist við að hafsínn færist nær landi

Búist er við að hafísinn kunni að færast nær landi þegar vindur snýst í sterka norðvestanátt í dag og síðan í norðanátt.

Þegar eftirlitsflugvél Landhelgisgæslunnar fór í ískönnunarflug í gærkvöldi var ísinn 48 mílur norðvestur af Grímsey, 34 mílur norður af Skagatá við Húnaflóa og 25 sjómílur út af Straumnesi vestur af Vestfjörðum.

Þá sigldi skip framhjá borgarísjaka norðaustur af Horni i nótt.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×