Innlent

Fjölmennt útkall slökkviliðs vegna elds í Hafnarfirði

Einn var fluttur á slysadeild Landsspítalans með reykeitrun eftir að íbúð í fjölbýlishúsi við Álfaskeið í Hafnarfirði fylltist af reyk í gærkvöldi.

Fjölmennt slökkvilið var sent á vettvang, en í ljós kom að reykinn lagði úr potti, sem gleymst hafði á logandi hellu eldavélar. Einhverjar skemmdir urðu í eldhúsinu og reykræsti slökkviliðið íbúðina.

Íbúinn, sem varð fyrir reikeitrun, er á góðum batavegi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×