Innlent

Da Vinci fléttan: Helga og Vickram funduðu með Obama

SB skrifar
Hér sjást Helga Ingvarsdóttir og Vickram Bedi á fundi með Barack Obama.
Hér sjást Helga Ingvarsdóttir og Vickram Bedi á fundi með Barack Obama. Mynd/The Journal News exclusive
Yfirvöld í Bandaríkjunum hafa fryst allar eigum Vicram Bedi, unnusta Helgu Ingvarsdóttir, en parið er í varðhaldi í Bandaríkjunum sakað um hafa svikið hundruðir milljóna út úr aukýfingnum Roger Davidson.

Á myndinni með þessari frétt sjást Helga Ingvarsdóttir og Vicram Bedi ásamt Barack Obama forseta Bandaríkjanna. Þau munu hafa fengið aðgangsmiða á fundinn eftir að lagt fram stór framlög í kosningasjóð Demókrata. Önnur þessara peningagjafa mun hafa komið beint frá Roger Davidson.

Í fréttum The Journal News kemur fram að eigur Vickram Bedi að andvirði 8 milljónir Bandaríkjadala, um einn milljarður íslenskra króna, hafa verið frystar. Þar segir jafnframt að parið hafi verið að undirbúa að flýja til Íslands eftir að hafa svikið hundruðir milljóna af Roger Davidson.

Roger er af ríkum olíuættum, erfingi auðæfa Schlumberger fjölskyldunnar, en er best þekktur sem tónskáld, flytjandi og skipuleggjandi trúarlegra tónlistarhátíða.

Í frétt Journal News kemur fram að parið hafi misnotað sér traust tónskáldsins sem meðal annars gerði Vickram Bedi að stjórnarmanni 60 milljón dollara sjóðs sem hélt utan um fjölskylduauðæfi hans. Þennan sjóð á Vicram Bedi að hafa nýtt til áhættufjárfestinga sem skiluðu litlum gróða.




Tengdar fréttir

Faðir Helgu: „Ég trúi á sakleysi hennar"

Ingvar J. Karlsson, faðir Helgu Ingvarsdóttur, sem er í haldi í Bandaríkjunum í tengslum við risavaxið fjársvikamál segist trúa á sakleysi dóttur sinnar og að sannleikurinn í málinu muni koma fram.

Da Vinci fléttan: Unnu náið með fórnarlambinu

Í bæklingi frá Universal Sacred Music kemur fram að Helga Ingvarsdóttir gengdi stöðu gjaldkera í stjórn félagsins. Forseti samtakanna er Roger Davidson og unnusti Helgu, Vickram Bedi er varaforseti.samtakanna sem snúast um trúarlega klassíska tónlist.

Da Vinci fléttan: Málið er eins og sápuópera

Lögreglan í New York-ríki rannsakar nú hvort hluti ágóðans af lygilegri svikamyllu Helgu Ingvarsdóttur og kærasta hennar, Vickram Bedi, hafi verið fluttur til Íslands. Þetta segir upplýsingafulltrúi saksóknaraembættisins í Westchester-sýslu, sem lýsir málinu sem sápuóperu.

Da Vinci fléttan: Var „lífvörður“ erfingjans á tónleikum

Hið ótrúlega fjárkúgunarmál sem upp er komið í Bandaríkunum og tengist Íslandi á þann hátt að annar hinna grunuðu fjárkúgara er íslensk kona, hefur vakið mikla athygli. Á Youtube má sjá myndband frá árinu 2006 þar sem fórnarlambið Roger Davidson, milljónamæringur og þekktur píanóleikari heldur tölu á tónleikum sem hann skipulagði. Á bakvið Davidson stendur Vickram Bedi ábúðarfullur en hann taldi Davidson meðal annars á að ráða sig sem lífvörð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×