Erlent

Hringdi inn sprengjuhótun til að koma í veg fyrir brúðkaup

Móðir í Rússlandi greip til örþrifaráða þegar dóttir hennar var á leið upp í flugvél til þess að hitta tilvonandi eiginmann sinn. Móðirin var greinilega ósátt við ráðahaginn og hringdi hún í flugvallaryfirvöld rétt fyrir flugtak og sagði að dóttirin ætlaði sér að sprengja flugvélina í loft upp. Lögregla brást snöggt við, vélin var stöðvuð á flugbrautinni og dóttirin handtekin af þungvopnuðum víkingasveitarmönnum.

Þegar engin sprengja fannst í vélinni var símtalið rakið og þá komust laganna verðir að því að mamman hafði hringt. „Dóttir hennar hafði nýverið kynnst manni frá Marokkó og var á leið þangað til þess að giftast honum," segir lögreglan. „Konan var á móti ráðahagnum og vildi alls ekki að dóttir sín flyttist til útlanda." Umhyggjusama móðirin má búast við þungum dómi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×